Fara í efni

Frítt í sundlaugar Skagafjarðar á morgun frá 14-16

25.08.2023

Í tilefni af Umhyggjudeginum á morgun, laugardaginn 26. ágúst, verður frítt í sundlaugar Skagafjarðar frá kl. 14-16. Glaðningur verður fyrir alla krakka sem mæta í sund á meðan birgðir endast.

Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra. Þau bjóða m.a. upp á endurgjaldslausa sálfræðiþjónustu og lögfræðiráðgjöf fyrir foreldra, niðurgreidd námskeið fyrir systkini, fjárstyrki, orlofshús, aðstoð við réttindabaráttu ásamt ráðgjöf til fjölskyldna og fagaðila. Umhyggja reiðir sig alfarið á styrki frá einstaklingum og fyrirtækjum í samfélaginu.