Fara í efni

Friðarganga og jólabingó

27.11.2014

Nú líður að jólum því aðventan gengur í garð á sunnudaginn með tilheyrandi árlegum viðburðum. Friðarganga Árskóla verður föstudaginn 28. nóvember og lagt verður af stað frá skólanum kl 8:15. Nemendur og kennarar munu að venju mynda keðju upp kirkjustíginn og tendra ljós á krossinum.

Nemendur 10. bekkjar Varmahlíðarskóla verða með jólabingó í skólanum á föstudagskvöldinu kl 20 og nemendur Grunnskólans austan Vatna eru að hefja fjáröflun og selja handgerð kerti frá Heimaey en nánari upplýsingar eru á heimasíðu skólans.