Friðarganga Árskóla verður farin 27. nóvember nk.
23.11.2026
Hin árlega friðarganga Árskóla verður farin föstudaginn 27. nóvember nk. Við upphaf aðventu er hefð fyrir því að nemendur og starfsfólk skólans gangi fylktu liði upp Kirkjustíginn á Sauðárkróki og myndi friðarkeðju þar sem ljós og friðarkveðjur ganga á milli.
Ljósið er fært alla leið upp á Nafir að krossinum, sem síðan er lýstur upp. Að göngu lokinni er haldið aftur á skólalóðina þar sem kakó og piparkökur bíða hópsins.
Líkt og fyrr segir er um einstaklega fallega hefð að ræða í skólanum þar sem lögð er áhersla á samstöðu og ósk um frið á tímum sem kalla á samkennd.