Fara í efni

Frestur til að skila framboðslistum rennur út á hádegi föstudaginn 8. apríl 2022

30.03.2022

Frestur til að skila framboðslistum rennur út á hádegi föstudaginn 8. apríl 2022

Í sameinuðu sveitarfélagi Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar verður tekið á móti framboðslistum til sveitarstjórnarkosninga 2022 í Ráðhúsinu á Sauðárkróki, frá kl 10:00 - 12:00 föstudaginn 8. apríl 2022.

Kristín Jónsdóttir skjalastjóri veitir listunum viðtöku og staðfestir móttöku þeirra f.h. yfirkjörstjórnar.

Yfirkjörstjórn mun koma saman kl. 11:00, mánudaginn 11. apríl til að staðfesta fram komin framboð og mun auglýsa þau í kjölfarið.

Á kosningavef Stjórnarráðs Íslands www.kosning.is er að finna greinargóðar leiðbeiningar til þeirra sem hyggjast bjóða fram lista, svo sem sýnishorn af framboðslista, lista meðmælenda og samþykki frambjóðenda.

Meðmælendakerfi Þjóðskrár