Fara í efni

Framúrskarandi fyrirtæki í Skagafirði

06.02.2015

Logo Svf. SkagafjarðarSíðast liðin fimm ár hefur Creditinfo unnið ítarlega greiningu sem sýnir hvaða íslensk fyrirtæki teljast til fyrirmyndar að teknu tilliti til ýmissa þátta sem varða rekstur og stöðu þeirra. Í ár eru það 577 fyrirtæki sem komust á listann af þeim 32.691 sem skráð eru í hlutafélagaskrá eða um 1,7%.

Meðal þessara fyrirtækja eru 7 skagfirsk fyrirtæki en það eru: Kaupfélag Skagfirðinga svf., FISK Seafood ehf., Vörumiðlun ehf., Steinull hf., Tengill ehf., Ók Gámaþjónusta ehf. og Raðhús ehf.

Við óskum þessum fyrirtækjum innilega til hamingju með glæsilegan árangur!