Fara í efni

Framtíðarstarf fyrir konu á heimili fatlaðs fólks - Fellstún 19b

06.04.2018

Framtíðarstarf fyrir konu á heimili fatlaðs fólks – Fellstún 19b

 

Upphaf starfs: 1. júní 2018.

Starfshlutfall: 50 – 70% starfshlutfall.

Starfsheiti: Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður starfar á heimili fyrir fatlaða einstaklinga. Starfið felur í sér að  aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og  afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Menntunarkröfur: Gerð er krafa um bílpróf. Önnur menntun er kostur.

Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri. Hreint sakavottorð í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks.

Vinnutími: Vaktavinna. (Dag-, kvöld- og helgarvaktir.)

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2018

Nánari upplýsingar: Ragnheiður M. Rögnvaldsdóttir, forstöðumaður, í síma 453-6070 eða með tölvupósti; ragnheidurr@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsókn ásamt ferilskrá er greinir frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum íbúagátt  sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.