Fara í efni

Framlengdur umsóknarfrestur um stöðu sjúkraliða í Dagdvöl aldraðra

23.09.2016

Laus tímabundin staða sjúkraliða í Dagdvöl aldraðra

Fjölskylduþjónusta Skagafjarðar auglýsir lausa stöðu sjúkraliða vegna afleysinga í Dagdvöl aldraðra. Um 77% tímabundið starf er að ræða og unnið er á dagvinnutíma. Ef ekki fæst sjúkraliði til starfa þá verður annar ráðinn. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.

Starfstími: 1. október 2016 til 31. maí 2017

Fjöldi og starfshlutfall: Eitt tímabundið starf í 77% starfshlutfalli.

Menntunar og hæfniskröfur: Sjúkraliðamenntun. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með öldruðum og getur sýnt lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi, góðvild og stundvísi. Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri.

Launakjör: Starfið hentar konum sem körlum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur: Framlengdur umsóknarfrestur er til og með 29. september 2016.

Nánari upplýsingar: Elísabet Pálmadóttir, forstöðumaður, í síma 453-5909 / 692-5909 eða elisabet@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.