Fara í efni

Framkvæmdir neðan Brekkugötu á Sauðárkróki

18.10.2023

Á næstu dögum hefjast framkvæmdir við mótfyllingar neðan við Brekkugötu en framkvæmdinni er ætlað að draga úr bratta neðan götunar og auka stöðuleika jarðvegs. Mun framkvæmdin fela í sér lagningu drenlagna, malarfyllingar og frágang yfirborðs. Að undangenginni verðkönnun var samið við Vinnuvélar Símonar að vinna verkið en verkfræðistofurnar Efla og Stoð sáu um að leggja mat á aðstæður og útfærslu á aðgerðum.

Áætluð verklok með endanlegu yfirborði eru áætluð 1. Júní 2024.