Framkvæmdatilkynning:Malbikun á Sauðárkróki
05.06.2026
Vakin er athygli á því að í næstu viku, dagana 8-12. júní verður farið í malbikanir og viðgerðir á götum á Sauðárkróki.
Búast má við tímabundnum truflunum á umferð víða í bænum meðan á framkvæmdum stendur. Sérstakri aðvörun er beint til vegfarenda vegna hvassra kanta á þeim stöðum þar sem verið er að undirbúa malbik.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.