Framkvæmdatilkynning: Tímabundin lokun sundlaugar á Sauðárkróki
03.06.2026
Vakin er athygli á því að vegna viðhalds verður sundlaugin á Sauðárkróki lokuð tímabundið. Unnið er að lagfæringum á sundlaugarbakkanum auk þess sem verið er að klára uppsetningu á hitalögnum í kringum gömlu laugina.
Stefnt er að því að sundlaugin verði opnuð aftur helgina 13.–14. júní nk.
Beðist er afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir skilninginn.
Sveitarfélagið hvetur íbúa og gesti eindregið til þess að heimsækja sundlaugarnar á Hofsósi og í Varmahlíð meðan á framkvæmdum stendur