Fara í efni

Fræðsludagur skólanna í Skagafirði og Heilsueflandi Samfélag

16.08.2019
Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri og Alma Möller landlæknir undirrita samning um Heilsueflandi Samfélag á árlegum fræðsludegi skólanna í Skagafirði.

Árlegur fræðsludagur skólanna í Skagafirði var haldinn í Miðgarði í gær, 15. ágúst. Dagur þessi markar upphaf nýs skólaárs og er helgaður faglegu starfi þeirra. Dagurinn er einnig vettvangur skólafólks til að kynna og fjalla um ýmis starfsþróunar- og nýbreytniverkefni sem starfsfólk skólanna vinnur að og er jafnframt vettvangur allra starfsmanna til hittast og eiga góða stund saman. Þetta er í 10. sinn sem allir starfsmenn í leik- grunn- og tónlistarskólum Skagafjarðar koma saman en nú bættust líka í hópinn starfsmenn Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Það er sérlega ánægjulegt að fá þá með í hópinn og þátttaka þeirra gefur okkur færi á að ræða skólamál á breiðari grunni en áður.

Það var einnig vel við hæfi að undirrita samstarfssamning á milli Embætti Landlæknis og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um að Skagafjörður gerðist með formelgum hætti aðili að verkefninu Heilsueflandi Samfélag. Í því felst að sveitarfélagið skuldbindur sig til að vinna með markvissum hætti að markmiðum og leiðarljósum verkefnisins á öllum stigum stjórnsýslu og þjónustu sveitarfélagsins. Sveitarfélagið Skagafjörður kappkostar að gera gott samfélag betra fyrir alla íbúa þess og er þátttaka í þessu verkefni einn liður í því.

Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri, Alma Möller landlæknir, Laufey Kristín Skúladóttir formaður fræðslunefndar og Guðný Axelsdóttir formaður félags- og tómstundanefndar.

Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri, Alma Möller landlæknir, Laufey Kristín Skúladóttir formaður fræðslunefndar og Guðný Axelsdóttir formaður félags- og tómstundanefndar.

Frá fræðsludegi skólanna í Skagafirði í Miðgarði.