Fara í efni

Formleg lyklaskipti í Ráðhúsinu á Sauðárkróki

04.09.2018

Formleg lyklaskipti fóru fram í Ráðhúsinu á Sauðárkróki í gær þegar Ásta Pálmadóttir, fráfarandi sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar, afhenti nýjum sveitarstjóra, Sigfúsi Inga Sigfússyni lyklana. Oddvitar meirihlutans, Stefán Vagn Stefánsson og Gísli Sigurðsson, þökkuðu Ástu vel unnin störf og óskuðu henni velfarnaðar á komandi tímum og buðu þeir nýjan sveitarstjóra velkominn til starfa.