Fara í efni

Foreldraverðalaun Heimilis og skóla - Sveitadagar að vori í Varmahlíðarskóla

16.05.2014
Mynd Varmahlíðarskóli

Á heimasíðu Varmahlíðarskóla segir að  góðir gestir hafi heimsótt skólann í vikunni til að fylgja eftir foreldraverðlaunum 2013 fyrir verkefnið Sveitadagar að vori í Varmahlíðarskóla. Gestirnir heimsóttu bæi í Lýtingsstaðahreppi, skoðuðu mismunandi búskap og spjölluðu við nemendur og foreldra. Frá Heimili og skóla komu Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri og Anna Margrét Sigurðardóttir, formaður. Frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu komu Guðni Olgeirsson, sérfræðingur og Guðrún Birna Jóhanndóttir, verkefnisstjóri.