Fara í efni

Fjölskylduþjónusta Skagafjarðar auglýsir tímabundið starf í Kleifatúni laust til umsóknar

19.12.2016

Fjölskylduþjónusta Skagafjarðar auglýsir tímabundið starf í Kleifatúni laust til umsóknar

Tímabil starfs: Frá byrjun janúar 2017 til maíloka 2017, með möguleika á þriggja mánaða lengingu eða til lok ágústs 2017.

Starfshlutfall: 85% starfshlutfall.

Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli II.

Lýsing á starfinu: Starfið felst í þjónustu við einstaklinga með fötlun og veitir aðstoð við daglegt líf sem og sinnir félagslegum jafnt sem líkamlegum þörfum eftir því sem við á.

Menntunar- og hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hefur til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn.

Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 1. janúar 2017

Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi, í síma 455-6082 eða með tölvupósti: sigthrudurh@skagafjordur.is

Umsóknir: Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.