Fara í efni

Fjölskyldusvið sveitarfélagsins auglýsir laus störf

27.05.2014

Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar auglýsir laus störf, til lengri tíma og sumarafleysingar.

Málefni fatlaðs fólks - búseta og dagþjónusta

 

Lýsing á starfinu: Starfsmaður sinnir fötluðum einstaklingum. Hann sér um almenna umönnun þeirra vegna líkamlegra og félagslegra þarfa eftir því sem við á.
Kröfur v/starfs: Leitað er að einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum.  Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Í  búsetu og skammtímavistun er um vaktavinnu að ræða en dagvinnu í dagþjónustu.

Ráðið verður í störfin sem fyrst.

Nánari upplýsingar um störfin gefa:
Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi, steinunnr@skagafjordur.is, s: 455 6000.
Edda E. Haraldsdóttir, forstöðumaður, fellstun@skagafjordur.is  s: 453 6692.
Jónína G. Gunnarsdóttir, forstöðumaður, idja@skagafjordur.is  s: 453 6853.

Sótt er um störfin á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (störf í boði) eða í íbúagátt sveitarfélagsins.

Sækja um