Fara í efni

Fjölskyldusvið auglýsir starf í heimaþjónustu laust til umsóknar

03.04.2018

Fjölskyldusvið auglýsir starf í heimaþjónustu laust til umsóknar

 

Upphaf starfs: 1. maí 2018, eða eftir samkomulagi.

Starfshlutfall: 100% starfshlutfall.

Starfsheiti: Heimaþjónusta II.

Lýsing á starfinu: Heimaþjónustan veitir aðstoð við þrif og önnur heimilisstörf. Markmið heimaþjónustu er að efla einstaklinginn til sjálfshjálpar og gera honum kleift að búa sem lengst í heimaþjónustu við sem eðlilegastar aðstæður. Heimaþjónusta er veitt þeim sem geta ekki hjálparlaust séð um heimilishald vegna skertrar getu eins og veikinda, álags, öldrunar eða fötlunar.

Menntunarkröfur: Almenn menntun. Bílpróf.

Hæfniskröfur: Næmur skilningur og hæfni í mannlegum samskiptum. Samviskusemi, frumkvæði, áreiðanleiki og hæfileiki til að bregðast við og taka á óvæntum atvikum. Umsækjandi þarf jafnframt að vera stundvís og heiðarlegur.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2018

Nánari upplýsingar: Gunnar Sandholt, félagsmálastjóri, sandholt@skagafjordur.is, 455-6000.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.

                                              

Heimaþjónusta er þjónustustarf sem unnið er inni á heimili eða daglegu umhverfi þjónustuþega og byggir á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Starfið felst í almennum heimilisstörfum sem notandinn getur ekki leyst af hendi sjálfur og nauðsynlegu liðsinni sem stuðlar að því að auka virkni og rjúfa félagslega einangrun. Öll heimaþjónusta skal veitt af virðingu fyrir notandanum og í samráði við hann.