Fara í efni

Fjölskyldufjör í Glaumbæ fimmtudaginn 19. febrúar nk.

11.02.2026
Skemmtileg dagskrá verður í Glaumbæ fyrir börn og aðstandendur þeirra í vetrarfríinu fimmtudaginn 19. febrúar, frá kl. 12:00 -16:00.
 
Fjölskyldur eru hvattar til að koma á safnið og hafa gaman saman!
  • Leiðsögn um gamla bæinn kl. 13:00 og kl. 15:00.
  • Bingóspjald Byggðasafnsins, verðlaun í boði fyrir eina röð eða heilt spjald!
Rjúkandi heitt kakó og gómsætar veitingar verða á boðstólnum í Áshúsi.
 
Ókeypis aðgangur á safnið fyrir fullorðna í fylgd með börnum.