Fara í efni

Fjölgun gesta hjá Byggðasafni Skagfirðinga

06.01.2014

Á heimasíðu Byggðasafns Skagfirðinga segir að gestir safnsins árið 2013 hafi verið 39.344 manns. Gestir gamla bæjarins í Glaumbæ voru 36.549 en voru árið 2012 32.813 þannig að fjölgunin er 3.736 manns á milli ára. Gestir Minjahússins á Sauðárkróki voru 2.795 og fjölgaði um 558 manns. 95 % gesta safnsins eru erlendir.