Fara í efni

Fjölgun gesta á milli ára á Héraðsbókasafni Skagfirðinga

01.07.2026

Það er ánægjulegt að greina frá því að fjölgun gesta á Héraðsbókasafni Skagfirðinga, fyrri hluta ársins 2026 á Sauðárkróki er tæp 10% miðað við fyrri hluta ársins í fyrra. Þá er fjölgun gesta í öllum mánuðum ársins, en mest þó í maí og júní.

Árið 2025 komu 4.086 gestir á fyrri hluta ársins, en í ár eru gestirnir 4.477, þetta er fjölgun um rúm 9,5%.

Ár 2025 2026
Janúar 740 742
Febrúar 971 975
Mars 686 734
Apríl 704 732
Maí 429 592
Júní 556 702

 

Þessi fjölgun gesta endurspeglar aukinn áhuga á þjónustu bókasafnsins og mikilvægt hlutverk þess í samfélaginu.