Fara í efni

Fjárhagsáætlanir fyrir árin 2016-2019 samþykktar

10.12.2015
Fjárhagsáætlun 2016-2019

Fjárhagsáætlanir Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árin 2016-2019 voru samþykktar samhljóða með atkvæðum allra sveitarstjórnarfulltrúa  við síðari umræðu á fundi sveitarstjórnar í gær. 
Helstu fjárfestingar ársins 2016 verða vegna Sundlaugar Sauðárkróks, byggingu vatnstanks fyrir kalt vatn á Gránumóum, hitaveituframkvæmda í Fljótum, skjólgarðs við smábátahöfnina á Sauðárkróki og kaupa á slökkvibifreið.

Í fundargerð var eftirfarandi bókað:

"Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri tók til máls og kynnti fjárhagsáætlun 2016.

Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2016 er lögð fram til seinni umræðu. Fjárhagsáætlunin sýnir rekstraráætlun, sjóðsstreymi og áætlaðan efnahagsreikning fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess. Áætlun ársins gerir ráð fyrir að rekstrartekjur Sveitarfélagsins Skagafjarðar nemi 4.422 m.kr. hjá samstæðunni í heild, A- og B hluta, þar af eru rekstrartekjur A- hluta áætlaðar 3.801 m.kr. Rekstrargjöld án fjármagnsliða eru áætluð 4.067 m.kr., þ.a. A hluti 3.680 m.kr. Rekstrarafgangur A og B hluta án afskrifta og fjármagnsliða er áætlaður 519 m.kr, afskriftir nema 164 m.kr. og fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur nema 302 m.kr., rekstrarniðurstaða samstæðunnar í heild A og B hluta er áætluð jákvæð samtals með 53 m.kr. í rekstrarafgang. Rekstrarafgangur A hluta án afskrifta og fjármagnsliða er 220 m.kr, afskriftir nema 100 m.kr., fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur nema 221 m.kr. Rekstrarniðurstaða A hluta sveitarsjóðs er því áætluð neikvæð um 101 m.kr.
Eignir Sveitarfélagsins Skagafjarðar eru áætlaðar í árslok 7.790 m.kr., þ.a. eignir A hluta 5.988 m.kr. Skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar í árslok 6.046 m.kr., þ.a. hjá A hluta 5.076 m.kr. Eigið fé er áætlað 1.744 m.kr hjá samstæðunni og eiginfjárhlutfall því 0,22. Eigið fé A hluta er áætlað 911 m.kr. og eiginfjárhlutfall 0,15. Ný lántaka er áætluð 850 m.kr. hjá samstæðunni í heild og að afborganir eldri lána og skuldbindinga verði um 738 m.kr. Reiknaðar lífeyrisskuldbindingar eru 1.031 m.kr. hjá samstæðu, þar af 940 m.kr. hjá A-hluta. Skuldahlutfall samstæðunnar er áætlað 137%.
Áætlunin gerir ráð fyrir að veltufé frá rekstri A - hluta verði 153 m.kr., og veltufé frá rekstri samstæðunnar A og B hluta verði samtals 376 m.kr. Þá er gert er ráð fyrir að handbært fé í árslok verði 132 m.kr. hjá samstæðunni í heild."

Greinargerð sveitarstjóra

Fjárhagsáætlun 2016

Þriggja ára áætlun 2017-2019