Fara í efni

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta fyrir byggðarlagið Hofsós

19.02.2018
Logo Fiskistofu

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. ákvæðum reglugerðar nr. 604/2017 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018.

  • Kaldrananeshrepp (Drangsnes)
  • Sveitarfélagið Skagafjörð (Hofsós)

Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðarlögum, sbr. auglýsingu nr. 160/2018 í Stjórnartíðindum.

  • Sveitarfélagið Árborg (Stokkseyri og Eyrarbakki)
  • Sandgerðisbær
  • Sveitarfélagið Vogar
  • Strandabyggð (Hólmavík)
  • Blönduósbær (Blönduós)
  • Fjarðabyggð (Mjóifjörður og Stöðvarfjörður)
  • Breiðdalshreppur (Breiðdalsvík)

Umsóknareyðublað

Samningur við vinnslu

Vakin skal athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.

Nánari upplýsingar

Umsókn skal skila í tölvupósti á byggdakvoti@fiskistofa.is

Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2018.