Fara í efni

Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði stendur fyrir fyrirlestri um markaðssetningu áfangastaða og hlutverk sjálfsímyndar staða

21.01.2019
Frá sýningunni Mannamót 2019 Mynd: Facebooksíða Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði

Fimmtudaginn 24. janúar kl. 10:30 stendur Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði fyrir áhugaverðum fyrirlestri og vinnufundi um markaðssetningu áfangastaða og hlutverk sjálfsímyndar staða. Fundurinn verður haldinn á Hótel Varmahlíð og fyrirlesari er Elísabet Ögn Jóhannsdóttir frá Rannsóknarmiðstöð ferðamála. Boðið verður upp á súpu og brauð í hádeginu á 2.200 kr.

Markaðssetning skiptir miklu máli fyrir áfangastaði og hefur skilvirk mörkun áfangastaða og markaðssetning lengi verið talin eiga þátt í að efla samkeppnishæfni áfangastaða. Sjálfsímynd staða er sömuleiðis mjög mikilvæg í þessu ferli.
Fyrirlesturinn mun fjalla um leiðir til þess að kryfja sjálfsímynd áfangastaða sem að svo leggur grunninn að mörkun- og ímynd áfangastaða. Í lokin mun Elísabet svo kynna niðurstöður úr meistaraverkefni sínu þar sem hún og danskur samnemandi hennar rannsökuðu þátttöku og viðhorf ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi á mörkun Norðurlands sem áfangastað.

Félagsmenn og aðrir áhugasamir eru hvattir til þess að taka þátt í þessum viðburði og vinna að sameiginlegum hagsmunum sem liggja í markaðssetningu Skagafjarðar.

Æskilegt er að fólk skrái þátttöku, annaðhvort undir viðburðinum á facebook eða í tölvupósti lythorse@gmail.com.

Hér má sjá viðburðinn á Facebook.