Ert þú með viðburð á Sæluviku?
23.03.2026
Sæluvika Skagfirðinga er árleg lista- og menningarhátíð sem haldin verður í Skagafirði dagana 12. - 19. apríl 2026.
Þeir aðilar sem hyggjast standa fyrir viðburði á hátíðinni mega gjarnan senda eftirfarandi upplýsingar á netfangið mannlif@skagafjordur.is.
-
Dag- og tímasetning.
-
Stutta lýsingu á viðburði og mynd.
-
Nafn og símanúmer tengiliðs / viðburðahaldara.
Sveitarfélagið hvetur íbúa Skagafjarðar til að taka virkan þátt í Sæluviku 2026, bæði sem þátttakendur og skipuleggjendur, og leggja þannig sitt af mörkum til áframhaldandi þróunar hátíðarinnar.