Fara í efni

Ert þú með hugmynd að viðburði fyrir Sæluviku 2027?

09.10.2026

Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra hefur opnað fyrir umsóknir og styður meðal annars við menningar- og samfélagsverkefni, líkt og viðburðarhald.

Ef þú hefur hugsað þér að standa fyrir viðburði á Sæluviku 2027 gæti styrkur úr sjóðnum hjálpað til við að gera hugmyndina að veruleika.

Starfsfólk SSNV er tilbúið að aðstoða við umsóknarskrif og veita ráðgjöf um undirbúning og framsetningu verkefna. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu SSNV eða með því að hafa samband í síma 419-4550 eða á netföngin berglind@ssnv.is og/eða gudlaugur@ssnv.is

Sveitarfélagið hvetur einstaklinga, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir til að kynna sér tækifærin sem sjóðurinn býður upp á.