Fara í efni

Veðurstofan leitar upplýsinga um söguleg flóð í Héraðsvötnum

24.02.2016
Flóð við Ytri-Húsabakka. Mynd Hjalti Pálsson

Veðurstofa Íslands er að vinna að hættumati á helstu vatnsföllum landsins.  Hluti af því verkefni er að safna öllum tiltækum upplýsingum um söguleg flóð við eftirfarandi vatnsföll og þverár þeirra:

  • Hvítá í Borgarfirði
  • Héraðsvötn í Skagafirði
  • Eyjafjarðará
  • Skjálfandafljót
  • Lagarfljót.

Eins og upptalningin sýnir, beinist þessi áfangi að því að skoða flóð sem orsakast af veður­farslegum þáttum.  Það er eðlismunur á slíkum flóðum og jökulhlaupum sem orsakast af eldvirkni.  Það mikilvæga verkefni verður tekið fyrir með öðrum hætti.

Veðurstofan telur afar mikilvægt að yfirstandandi gagnasöfnun byggist eins og kostur er á upplýsingum sem aflað var á vettvangi og af því fólki sem kunnugt er staðháttum. Veðurstofan vildi því leita eftir öllum tiltækum upplýsingum varðandi fyrri flóð á ofan­greindum vatnasviðum þ.m.t. staðsetningu þeirra, umfang og það tjón sem þau ollu.  Varðandi tjón er einnig átt við truflun á rekstri innviða svo sem: veitukerfa, samskiptakerfa og samgöngukerfa.

Allar upplýsingar eru vel þegnar sama á hvaða formi sem þær eru svo sem ljósmyndir, myndskeið, kort, samtímafrásagnir, gagnagrunnsfærslur, dagbókarfærslur o.s.frv.

Þeir sem hafa slíkar upplýsingar eru hvattir til þess að senda okkur þær eða benda á hvar þær er að finna. Netfangið er vatnsflodasaga@vedur.is

Þá má hringja í Veðurstofuna og biðja um Davíð Egilson, sem veitir nánari upplýsingar segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands