Fara í efni

Býður þú upp á skemmtilega afþreyingu?

03.07.2020

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur hafið undirbúning að jólagjöfum starfsmanna sveitarfélagsins fyrir næstu jól. Ert þú að veita einhverja þjónustu eða býður þú upp á afþreyingu sem sniðugt væri að gefa í formi gjafabréfs? Ef þú hefur eitthvað á þínum snærum sem gæti verið sniðugt í jólapakkann og vilt koma á framfæri þá máttu gjarnan senda upplýsingar á skagafjordur@skagafjordur.is fyrir 30. ágúst 2020.  Um er að ræða ríflega 400 gjafir sem þurfa að afhendast í byrjun desember 2020.  

Nánari upplýsingar veita: 

Hrefna G. Björnsdóttir, mannauðsstjóri: 455 6065, hrefnag@skagafjordur.is 

Sigfús Ólafur Guðmundsson, verkefnastjóri: 455 6170, sigfusolafur@skagafjordur.is 

Heba Guðmundsdóttir, verkefnastjóri: 455 6017, heba@skagafjordur.is