Fara í efni

Norðurlands Jakinn á Sauðárkróki

21.08.2018

Norðurlands Jakinn, keppni sterkustu manna landsins, fer fram dagana 23. - 25. ágúst. Keppt verður á Sauðárkróki  í Réttstöðulyftu á föstudaginn kl. 12:00 við Safnahús Skagfirðinga.

 

Dagskrá keppninnar er sem hér segir:

Fimmtudagur 23. ágúst.

Kl. 13:00  Blönduós.

Drumbalyfta - á bæjartorginu við Félagsheimilið.

Kl. 17:00  Skagaströnd.

Kast yfir vegg - í Grundarhólum við Spákonuhof. 

Föstudagur 24. ágúst.

Kl. 12:00   Sauðárkrókur.

Réttstöðulyfta - við Safnahús Skagfirðinga .

Kl. 17:00  Ólafsfjörður.

Víkingapressa og mylluganga - við Tjarnarborg. 

Laugardagur 25. ágúst.  

Kl. 12:00   Mývatn.

Framhald og réttstöðuhald - við Dimmuborgir.