Endurvinnslusmiðja og laugardagsopnun
Síðasta laugardag, 5. september, var fyrsta laugardagsopnun á bókasafninu á Sauðárkróki þetta haustið. Yfirskrift opnunarinnar var að þessu sinni endurvinnsla og boðið var upp á endurvinnslusmiðju þar sem þær Solveig Pétursdóttir og Þuríður Helga Jónasdóttir frá Verðanda-Endurnýtingarmiðstöð á Hofsósi leiðbeindu gestum um gerð bókarmerkja, tækifæriskorta og minnisbóka úr endurunnum pappír og texta.
Það var talsverður gestagangur á bókasafninu þennan laugardag og hvetur sveitarfélagið íbúa til þess að nýta sér laugardagsopnanirnar í vetur. Það er oft annar taktur þegar tækifæri gefst til að heimsækja bókasafnið á laugardögum og margir sem gefa sér þá betri tíma til að staldra við, lesa bækur eða tímarit, skoða safnkostinn eða njóta stundarinnar í barnahorninu.
Í vetur verða opnunartímar almenningsbókasafnanna í Skagafirði eftirfarandi:
- Hofsós (Túngata 2): Miðvikudagar kl. 15:00–17:00.
- Sauðárkrókur (Safnahúsið við Faxatorg): Virkir dagar kl. 11:00–18:00 og laugardagar kl. 10:30–14:00.
- Varmahlíð (Varmahlíðarskóli, jarðhæð við aðalinngang): Fimmtudagar kl. 15:00–17:00.