Fara í efni

Endurnýjun rafrænna klippikorta fyrir sorpmóttöku

27.12.2023

Þann 1. apríl sl. voru rafræn klippikort fyrir sorpmóttöku tekin í notkun í Skagafirði og hafa um 1300 kort verið sótt. Gildis tími þessa korta eru til loka janúar 2024. Greiðendur fasteignagjalda fyrir árið 2024 geta sótt nýtt kort fyrir árið 2024 eftir 1. febrúar nk. á síðunni skagafjardarkort.is. Áfram verður í boði fyrir þá sem vilja fá útprentað klippikort að koma í ráðhúsið og fá slík kort afhent þar.