Fara í efni

Endurnýjun rafrænna endurvinnslukorta

19.02.2024

Samhliða álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2024 sem tók gildi 1. febrúar sl. þurfa eigendur fasteigna að endurnýja endurvinnslukort.
Hvert heimili fær 16 skipta kort til að nota yfir árið. Skráðir eigendur fasteigna sem fá greiðsluseðla fyrir sorpgjaldi geta sótt kortin á https://skagafjardarkort.is/. Valið er 16 skipta klippikort og rafræna innskráningu. Ef innskráður notandi á rétt á kortinu án endurgjalds breytist verðið á kortinu í 0 kr. Athugið að setja þarf kortið í rafrænt veski í símanum svo það virki.

Þeir aðilar sem ekki eru með rafrænt veski geta prentað út klippikortið og látið skanna kóðan á klippikortinu á sorpmóttökustöð. Eftir að klippikortið hefur verið sótt í síma er hægt að deila því áfram á aðra íbúa húsnæðisins til notkunar. Þannig geta fleiri en einn verið með sama klippikortið í símanum sínum.

Þegar komið er með sorp á móttökustöð er kóðinn á kortinu skannaður af starfsmanni móttökustöðvar. Ekkert þarf að greiða fyrir ógjaldskyldan úrgang en tekið er af kortinu fyrir allan gjaldskyldan úrgang. Hvert klipp gildir fyrir allt að 0,25 m3. Á hverju korti eru 16 skipti, sem duga samtals fyrir 4,0 m3.

Að öllu jöfnu ætti hvert kort að duga út árið. En ef kort klárast er hægt að kaupa auka kort á https://skagafjardarkort.is/

 

Nokkur atriði varðandi rafræn klippikort:

- Kortin eru sótt inn á https://skagafjardarkort.is

- Notandi notar rafræna innskráningu til að auðkenna sig.

- Skráðir eigendur fasteigna sem fá til sín greiðsluseðla vegna sorpgjalds geta sótt 16 skipta klippikort sér að kostnaðarlausu. Athugið að þeir eigendur sem ekki fá til sín greiðsluseðla geta ekki sótt kortið heldur þurfa þeir sem eru skráðir fyrir greiðslu sorpgjalds að sækja kortið.

- Kortið er vistað í rafrænu veski t.d SmartWallet fyrir Android síma eða Apple Wallet fyrir Iphone síma.

- Þeir sem ekki eru með snjallsíma eða vilja ekki nýta sér rafræna kortið í símanum geta prentað út kortið og notað á sorpmóttökustöðum. Passa þarf að QR kóðinn sem er á klippikortinu sé vel sýnilegur svo hægt sé að skanna hann.

- Hægt er að deila kortinu til annarra. Þegar að búið er að sækja kortið í síma er hægt að deila kortinu áfram til annarra aðila. Þannig er hægt að deila kortinu áfram til annarra einstaklinga sem búa í sömu fasteign, til leigjanda í viðkomandi fasteign o.s.frv.

 

Áríðandi er að skoða vel hvaða flokkar eru gjaldfrjálsir og hverjir gjaldskyldir. Sé sorpið flokkað til samræmis við það endist kortið lengur. Góð flokkun miðar að því að sem mest fari í endurvinnslu og eins lítið og mögulegt er til förgunar. Með því að flokka vel stuðlum við að umhverfisvernd og göngum í áttina að sjálfbærara samfélagi.