Fara í efni

Endurnýjuð leikskólalóð í Ársölum

12.08.2026

Leikskólalóðin við leikskólann Ársali eldra stig hefur tekið stakkaskiptum í sumar, en nýlega lauk miklum endurbótum á leikskólasvæðinu. Markmið framkvæmdanna var fyrst og fremst að bæta aðstæður barna til leikja utandyra.

Hluti lóðarinnar var jafnaður og sléttaður til að draga úr vatnssöfnun, sem í ákveðnu veðurfari var að valda því að stórir pollar mynduðust á ákveðnum svæðum. Samhliða því voru dren lagfærð til að tryggja betra frárennsli og draga úr drullusöfnun á lóðinni.

Þá voru eldri og ónýt leiktæki fjarlægð og ný leiktæki sett upp í staðinn. Með þessum breytingum hefur leiksvæði barnanna verið bætt verulega og er leiksvæðið nú orðið hið glæsilegasta.