Fara í efni

Eitt sveitarfélag í Skagafirði

20.02.2022

Íbúar Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafa samþykkt sameiningu sveitarfélaganna tveggja. Sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags verður kjörin 14. maí næstkomandi og tekur sameinað sveitarfélag gildi 15 dögum síðar.

Í Akrahreppi var kjörsókn 86,5 prósent. Alls greiddu 135 atkvæði, en 156 voru á kjörskrá.

  • Já sögðu 84
  • Nei sögðu 51
  • Auðir og ógildir 0

Í Sveitarfélaginu Skagafirði var kjörsókn 35,5 prósent. Alls greiddu 1.022 atkvæði, en 2.961 voru á kjörskrá.

  • Já sögðu 961
  • Nei sögðu 54
  • Auðir og ógildir voru 7

Niðurstöður eru birtar með fyrirvara um lokaskil kjörstjórna til Hagstofu.

Upplýsingar eru fengnar af vef Skagfirdingar.is.