Fara í efni

Eimskip veitir Vinaliðaverkefni Árskóla styrk

16.01.2015

Á heimasíðu Árskóla segir að Eimskip hafi ákveðið að styrkja Vinaliðaverkefni skólans til að stuðla að útbreiðslu þess. Verkefnið er upprunnið í Noregi og gerði Árskóli nýlega samning við norska eigendur þess en verkefnið er nú komið í vinnslu í 20 skólum hér á landi. Það eru Gestur Sigurjónsson og Guðjón Örn Jóhannsson sem stýra verkefninu og segja þeir styrkinn vera ómetnalegan því dýrt sé að ferðast milli skóla og kynna verkefnið. Þegar skóli hefur ákveðið að taka þátt fara þeir í heimsóknir í skólann og þjálfa upp starfsfólk og nemendur. Nánar má lesa um málið á heimasíðu Árskóla.