Fara í efni

Dýpkun í Sauðárkrókshöfn

06.01.2015
Sanddæluskipið Perla í Sauðárkrókshöfn

Um helgina hófu starfsmenn verktakafyrirtækisins Björgunar dýpkun í Sauðárkrókshöfn á sanddæluskipinu Perlunni. Samtals verður dælt um 22.000m3 af tveimur svæðum, svæði innan hafnarinnar og fyrir framan öldubrjót við hafnarminnið. Unnið er á sólarhringsvöktum á skipinu og tekur það um 300 rúmmetra í hverri ferð. Hluti af efninu úr dýpkuninni verður dælt á land á svæði þar sem gamla smábátahöfnin var staðsett. Verkkaupar eru siglingasvið Vegagerðarinnar og Sveitarfélagið Skagafjörður.