Fara í efni

Drög að Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2020-2024

08.10.2019

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur sett til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda, á vegum Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, drög að nýrri sóknaráætlun Norðurlands vestra. Drög að Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2020 til 2024 byggir á lögum um byggðaáætlun og sóknaráætlanir nr. 69 frá árinu 2015.

Opið verður fyrir athugasemdir og ábendingar til og með 14. október næstkomandi. Íbúar og aðrir hagaðilar eru hvattir til að kynna sér nýja sóknaráætlun landshlutans.

Við vinnslu áætlunarinnar var mikil áhersla lögð á samráð við íbúa svæðisins enda þeir sérfræðingar í málefnum landshlutans. Einnig var gengið út frá fyrirliggjandi gögnum um stöðu svæðisins, svo sem niðurstöðum íbúakannana, fyrirtækjakönnunar, gögnum frá þjóðskrá, Byggðastofnun o.fl.

Haldnir voru fjórir íbúafundir í tengslum við gerð Sóknaráætlunarinnar. Þrír þeirra voru minni fundir sem settir voru upp í hverri sýslu, V-Húnavatnssýslu, A-Húnavatnssýslu og Skagafjarðarsýslu. Á hvern þessara funda komu um 20 manns. Einnig var haldinn stórfundur fyrir allt svæðið og sóttu þann fund um 70 manns. Þessu til viðbótar var við upphaf vinnunnar gerð íbúakönnun og tóku um 320 manns þátt í henni. Það má því segja að á fimmta hundrað íbúa Norðurlands vestra hafi komið að gerð áætlunarinnar með einum eða öðrum hætti. Allir fundir voru opnir öllum íbúum svæðisins.

Sóknaráætlun Norðurlands vestra mun stýra ákvörðun um val á áhersluverkefnum og úthlutun styrkja úr Uppbyggingarsjóði landshlutans.

Drög að Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2020-2024:

Sækja skjal

Aðgangur að samráðsgátt