Draugasýning og draugasögur á bókasafninu á Sauðárkróki
20.10.2025
Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur segir frá draugum og þeim ólíku gerðum drauga sem finnast á Íslandi, uppvakningum, afturgöngum og útburðum, auk þess að segja nokkrar vel valdar íslenskar draugasögur. Þá verður einnig farið yfir ýmis praktísk atriði, eins og hvernig má þekkja drauga sem fólk mætir á förnum vegi, vekja þá upp og losna undan ásóknum þeirra. Sýning sem tengist draugasögum verður uppi í Safnahúsinu næstu vikur. Sýningin er unnin af Dagrúnu Ósk Jónsdóttir og Jóni Jónssyni þjóðfræðingum og Sunneva Guðrún Þórðardóttir gerði myndirnar sem prýða hana.
- Hvar: Héraðsbókasafn Skagfirðinga, Faxatorg
- Hvenær: Fimmtudaginn 23. október kl. 20:00