Deiliskipulagstillaga: Tumabrekka land 2, Skagafirði
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 47. fundi sínum þann 25. mars 2026 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir ”Tumabrekku land 2 L220570” í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsuppdráttur nr. DS-01, dags. 08.11.2024, verknr. 7586001 unnin af Ínu Björk Ársælsdóttur á Stoð ehf. verkfræðistofu. Uppdrátturinn sýnir staðsetningu byggingarreita, lóðamarka, vegtenginga og aðkomu að byggingum, ásamt helstu byggingarskilmálum. Stærð skipulagssvæðisins er 1,58 ha og að mestu mólendi.
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunni frá fyrri auglýsingu, munu fyrri umsagnir gilda berist ekki fleiri.
Tillagan er auglýst frá 31.mars 2026 til og með 12. maí 2026. Hægt er að skoða skipulagstillöguna í Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 389/2026. Tillagan mun jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi deiliskipulagstillöguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir máli númer 389/2026 í síðasta lagi 12.maí 2026. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is. Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.
Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar