Fara í efni

Deiliskipulagstillaga: Sorpmóttöku og gámalóð, Hofsósi

31.03.2026

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 47. fundi sínum þann 25. mars 2026 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir „Sorpmóttöku og gámalóð, Hofsósi, Skagafirði“, í samræmi við 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagstillagan er sett fram á uppdrætti með greinargerð nr. DS01, útgáfa 1.0 sem unnin var á Stoð ehf. verkfræðistofu. Skipulagssvæðið er 11.414 m² að stærð, á mótum Norðurbrautar að sunnan og Bæjarbrautar að austan. Að vestan afmarkast svæðið af vesturlóðamörkum áhaldahúss sveitarfélagsins. Skipulagsuppdrátturinn sýnir lóðir, aðkomu að lóðum og byggingarreiti á skipulagssvæðinu, ásamt helstu byggingarskilmálum. Í tillögunni eru sýndar þrjár lóðir á svæðinu, lóð gámageymslusvæðisins, lóð áhaldahússins og lóð sorpmóttökunnar. Starfsemi og umferðarsvæði sem fyrir eru á iðnaðarsvæðinu fá með deiliskipulagstillögunni skilgreindar lóðir, götur og innkeyrslur á lóðir.

Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunni frá fyrri auglýsingu (mál nr. 206/2023, https://skipulagsgatt.is/issues/2023/206/ ), munu fyrri umsagnir gilda berist ekki fleiri.

Tillagan er auglýst frá 31. mars 2026 til og með 12. maí 2026. Hægt er að skoða skipulagstillöguna í Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 394/2026. Tillagan mun jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi deiliskipulagstillöguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir máli númer 394/2026 í síðasta lagi 12.maí 2026. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is. Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar