Fara í efni

Deiliskipulagstillaga: Skógargötureitur, íbúðabyggð á Sauðárkróki

31.03.2026

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 47. fundi sínum þann 25. mars 2026 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir ” Skógargötureitinn, íbúðabyggð á Sauðárkróki” í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagstillagan er sett fram á uppdrætti með greinargerð nr. DS01, útgáfa 2.0, dags. 04.09.2024, sem unnin var á Stoð ehf. verkfræðistofu fyrir sveitarfélagið Skagafjörð. Skipulagssvæðið er 6.380 m² að stærð og afmarkast af Skógargötu að vestan, Kambastíg að norðan, Aðalgötu að austan og göngustíg að sunnan. Svæðið breytist frá vinnslutillögu þar sem afmörkun að vestanverðu færist til vesturs þannig að gatan falli innan svæðisins til að hægt sé að setja skilmála fyrir götuna skv. umsögn slökkviliðsstjóra. Innan skipulagssvæðisins eru skráðar 11 lóðir. Skipulagsuppdrátturinn sýnir lóðir, aðkomu að lóðum og byggingarreiti á skipulagssvæðinu, ásamt helstu byggingarskilmálum. Samhliða þessari deiliskipulagstillögu er unnin breyting á gildandi deiliskipulagi gamla bæjarins á Sauðárkróki og er það auglýst samhliða.

Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunni frá fyrri auglýsingu (mál nr. 208/2024, https://skipulagsgatt.is/issues/2024/208/ ), munu fyrri umsagnir gilda berist ekki fleiri.

Tillagan er auglýst frá 31.mars 2026 til og með 12. maí 2026. Hægt er að skoða skipulagstillöguna í Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 392/2026. Tillagan mun jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi deiliskipulagstillöguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir máli númer 392/2026 í síðasta lagi 12.maí 2026. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is. Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar