Deiliskipulagstillaga: Neðri-Ás, land 3 og 4, Skagafirði
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 49. fundi sínum þann 19. maí 2026 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir ”Neðri-Ás, land 3 og 4 í Skagafirði“ í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillagan er sett fram í greinargerð og uppdrætti dags. 11.05.2026, unnin af Kollgátu arkitektastofu. Markmið deiliskipulagsins er að skipuleggja frístundabyggð með alls 19 lóðum. Engin íbúðarhús eru leyfileg innan skipulagssvæðisins.
Gerðar hafa verið nokkrar breytingar frá fyrri deiliskipulagstillögu (mál nr. 277/2024 í Skipulagsgáttinni) þar sem m.a. ein lóð stækkar, nokkrir byggingarreitir stækka og vegir bætast við að lóðum 4 og 6. Skipulagsuppdrátturinn sýnir staðsetningu byggingarreita, lóðamarka, bílastæða, vegtenginga og aðkomu að byggingum, ásamt helstu byggingarskilmálum. Stærð skipulagssvæðisins er um 32,1 ha.
Tillagan er auglýst frá 3. júní 2026 til og með 16. júlí 2026. Hægt er að skoða skipulagstillöguna í Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 704/2026. Tillagan mun jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi deiliskipulagstillöguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir máli númer 704/2026 í síðasta lagi 16. júlí 2026. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is. Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.
Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar