Fara í efni

Deiliskipulagstillaga: Freyjugötureitur, suðurhluti, Sauðárkróki

03.06.2026

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 49. fundi sínum þann 19. maí 2026 að auglýsa deiliskipulagslýsingu fyrir ”Freyjugötureitur, suðurhluti, Sauðárkróki“ í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Helsta viðfangsefni fyrirhugaðs deiliskipulags verður að skapa grundvöll fyrir uppbyggingu svæðis innan þegar byggðrar íbúðarbyggðar í samræmi við markmið og ákvæði aðalskipulags. Lóðamörk og byggingarreitir verða skilgreindir ásamt því að settir verða skipulags- og byggingarskilmálar.

Helstu markmið fyrirhugaðrar deiliskipulagstillögu eru: Skilgreina lóðamörk og byggingarreiti, skilgreina aðkomu að lóðum, fjalla um brunavarnir og setja skipulags- og byggingarskilmála í samræmi við stefnu sveitarfélagsins.

Skipulagslýsingin er auglýst frá 3. júní 2026 til og með 24. júní 2026. Hægt er að skoða skipulagstillöguna í Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 693/2026. Lýsingin mun jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi skipulagslýsinguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir máli númer 693/2026 í síðasta lagi 24. júní 2026. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is. Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.

Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar