Deiliskipulagsbreyting: Gamli bærinn á Sauðárkróki, Skógargötureitur.
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 47. fundi sínum þann 25. mars 2026 að auglýsa deiliskipulagstillögu fyrir „Skógargötureitinn, íbúðabyggð á Sauðárkróki“, í samræmi við 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010 og samhliða henni tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi Gamla bæjarins á Sauðárkróki.
Deiliskipulagsbreytingin fyrir breytingu á deiliskipulagi Gamla bæjarins á Sauðárkróki er sett fram á uppdrætti með greinargerð nr. DS01, útgáfa 1.0, dags. 04.09.2024, sem unnin var á Stoð ehf. verkfræðistofu fyrir sveitarfélagið Skagafjörð.
Ástæða breytingarinnar er sú að í vinnslu er nýtt deiliskipulag fyrir Skógargötureitinn svokallaða á Sauðárkróki. Skipulagssvæði þess deiliskipulags afmarkast af Skógargötu að vestan, Kambastíg að norðan, Aðalgötu að austan og göngustíg að sunnan. Svæðið er innan deiliskipulags gamla bæjarins á Sauðárkróki frá 1987. Deiliskipulag Skógargötureitarins kallar á breytingu á gildandi deiliskipulagi gamla bæjarins þar sem hlut skipulagssvæðisins fellur út en skv. 5.3.1. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 mega deiliskipulagssvæði ekki skarast.
Vegna ábendingar frá Skipulagsstofnun þarf að endurtaka málsmeðferð skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, en þar sem engar breytingar hafa verið gerðar á tillögunni frá fyrri auglýsingu (mál nr. 1156/2024, https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1156 ), munu fyrri umsagnir gilda berist ekki fleiri.
Tillagan er auglýst frá 31. mars 2026 til og með 12. maí 2026. Hægt er að skoða skipulagstillöguna í Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 393/2026. Tillagan mun jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi deiliskipulagstillöguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir máli númer 393/2026 í síðasta lagi 12.maí 2026. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is. Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.
Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar