Deiliskipulagsbreyting: Deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki – Freyjugata 7 og 9
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 47. fundi sínum þann 25. mars 2026 að auglýsa deiliskipulagsbreytingu fyrir ”Deiliskipulag Gamla bæjarins á Sauðárkróki – Freyjugata 7 og 9” í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan er sett fram sem skipulagsuppdráttur nr. DSK-01, dags. 27.02.2026 og greinargerð dags. 27.02.2026 unnin af Teikistofunni Storð ehf. og Praxis arkitektúr ehf.
Deiliskipulagsbreytingin miðast við að byggja upp einbýlis – og raðhús með samtals 7 íbúðum sem falla að núverandi byggð við Freyjugötuna með íbúðarhúsum á einni hæð og risi við Freyjugötuna og á einni hæð á norðaustur horninu og styrkja þennan hluta miðbæjarins í þeim anda sem er í eldri hluta byggðarinnar á Sauðárkróki.
Deiliskipulagsmörkin miðast við Freyjugötu 7 og 9 og skipulagssvæðið er samtals um6.600 m² að stærð. Með uppbyggingu á svæðinu er stefnt að því að loka götumyndinni með meðfram austurhlið Freyjugötunnar með samhangandi byggð. En einnig að breyta fjölbýlishúsi á norðurhluta lóðar Freyjugötu nr. 9 í þriggja íbúða raðhús.
Tillagan er auglýst frá 31.mars 2026 til og með 12. maí 2026. Hægt er að skoða skipulagstillöguna í Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 388/2026. Tillagan mun jafnframt liggja frammi til kynningar í Ráðhúsinu, Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15. Einnig er hægt að nálgast gögnin á heimasíðu Skagafjarðar www.skagafjordur.is.
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum varðandi deiliskipulagstillöguna. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast í gegnum Skipulagsgáttina www.skipulagsgatt.is undir máli númer 388/2026 í síðasta lagi 12.maí 2026. Einnig er hægt að skila inn umsögnum til skipulagsfulltrúa í afgreiðslu Ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is. Umsagnir um skipulagsmál sveitarfélagsins teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum Skipulagsnefndar og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni. Persónuupplýsingar eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda.
Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar