Degi leikskólans fagnað með sköpun og leik
Í tilefni af degi leikskólans sem var 6. febrúar sl., var sett upp fjölbreytt og lifandi dagskrá hjá börnunum í leikskólum sveitarfélagsins. Í leikskólanum Ársölum var áhersla lögð á upplifun, könnun og sköpunargleði. Börnin fengu að ferðast á milli þriggja spennandi stöðva sem vöktu mikla lukku.
Ein stöðin bauð upp á könnunarleik með „spari“ ávöxtum – vínberjum, bláberjum og vatnsmelónu – sem slógu rækilega í gegn hjá börnunum. Á annarri stöðinni voru ljós og skuggar í aðalhlutverki en þar var meðal annars að finna ljósaborð, stjörnuljósalampa og ljós með filmum sem varpa mátti á vegg. Þriðja stöðin var hrísgrjónakarið þar sem börnin gátu skoðað og leikið með efni af ólíkri áferð, til dæmis loðna gæru og annað áhugavert efni. Börnin nutu dagsins til fulls og skapaðist skemmtileg og lærdómsrík stemning.
Í leikskólanum Tröllaborg settu börnin upp myndlistarsýningu í nærumhverfinu sínu. Börnin á Hólum fóru með myndir sínar í Háskólann á Hólum og settu þar upp sýningu, en börnin á Hofsósi komu verkum sínum fyrir í kaupfélaginu. Sýningarnar eru öllum opnar á meðan þær standa yfir og hvetjum við íbúa til að fara og njóta fallegra og fjölbreyttra listasýninga barnanna.
Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur um allt land til að vekja athygli á því mikilvæga og metnaðarfulla starfi sem á sér stað í leikskólum landsins – og gleði, sköpun og leikur einkenndu daginn í ár.