Fara í efni

Dansmaraþon í Árskóla

05.10.2016
Frá dansmaraþoni 2014

Nú er komið að hinum árlega viðburði að 10. bekkingar í Árskóla á Sauðárkróki hefja dansmaraþon og munu dansa frá kl 11 í dag miðvikudaginn 5. október til kl 11 í fyrramálið.

Kaffihús verður opið í dag kl 15:30 til 22 þar sem hægt er að kaupa heimabakað bakkelsi með kaffisopanum. Að venju verður hægt að panta súrsætan pottrétt að hætti Árskóla, snæða hann á staðnum og fylgjast með krökkunum dansa eða fá hann sendan heim. Tekið er á móti pöntunum í síma 455 1152 milli kl 15 og 18 í dag. Nánar

Dansmaraþonið er liður í fjáröflun nemenda 10. bekkjar fyrir skólaferðalagi næsta vor.