Fara í efni

Dansmaraþon 10. bekkjar

07.10.2015
Dansmaraþon 2014 - mynd Árskóli

Í dag hefja nemendur 10. bekkjar Árskóla árlegt dansmaraþon sem er liður í fjáröflun þeirra. Nemendur byrja að stíga dansinn kl 10 og munu dansa til kl 12 á hádegi á morgun fimmtudag 8. október. Í dag verður opið kaffihús í skólanum milli kl 15:30 og 22 þar sem hægt er að kaupa heimabakað bakkelsi með kaffinu. Kl 17 verður danssýning í íþróttahúsinu þar sem allir nemendur skólans munu taka sporið og matarsala 10. bekkinga og foreldra þeirra er í kvöld. Hægt er að fá matinn sendan heim eða koma og borða í matsal skólans og fylgjast með krökkunum dansa við undirleik skagfirskra tónlistarmanna.