Fara í efni

Dansmaraþon 10. bekkinga dagana 4.–5. nóvember nk.

03.11.2026

Dansmaraþon 10. bekkinga í Árskóla hefst á morgun, miðvikudaginn 4. nóvember, kl. 10:00 og lýkur fimmtudaginn 5. nóvember kl. 10:00. Nemendur úr árgangi 2011 ætla að dansa í heilan sólarhring.

Logi hefur stýrt dansinum um árabil en Ingunn Margrét er að taka við af honum og ætla þau því að stjórna dansinum saman þetta árið.

Upphaf og lok maraþonsins verða í íþróttahúsinu en þess á milli dansa nemendur í matsal skólans.

Kaffihús og veitingasala 4. nóvember

Gestum er velkomið að líta við, fylgjast með dansinum og njóta veitinga.

  • Kl. 10:00–13:00: Kaffihús í anddyri íþróttahússins.

  • Frá kl. 15:00: Kaffihús í matsal skólans með nýbökuðu bakkelsi.

  • Frá kl. 18:00: Pizzusneiðar og gos til sölu í matsalnum.

Dansmaraþonbolirnir eru rauðir með ljósbláu letri og fást hjá ritara skólans. Athugið að það er takmarkað magn í boði.

10. bekkingar í Árskóla, foreldrar þeirra og starfsfólk þakka einstaklingum og fyrirtækjum stuðninginn við dansmaraþonið.

Sveitarfélagið hvetur að sjálfsögðu öll sem hafa tök á að kíkja við og fylgjast með þessum mögnuðu krökkum og auðvitað heita á þau.