Fara í efni

Dagur kvenfélagskonunnar er í dag

01.02.2023

Í dag, 1. febrúar, er Dagur kvenfélagskonunnar og jafnframt stofndagur Kvenfélagasambands Íslands. 

Sveitafélagið Skagafjörður sendir kvenfélagskonunum sínum í kvenfélögum innan sveitarfélagsins bestu kveðjur í tilefni dagsins með þökk fyrir ómetanleg og óeigingjörn störf í gegnum árin.

Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) var stofnað 1. febrúar 1930 og eru því liðin 93 ár frá stofnun sambandsins. Árið 2010 var 1. febrúar formlega gerður að degi kvenfélagskonunnar til að vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna í 140 ár.