Fara í efni

Dagur kvenfélagskonunnar er í dag

01.02.2020

1. febrúar er Dagur kvenfélagskonunnar. Dagurinn, sem er stofndagur Kvenfélagasambands Íslands, var formlega gerður að degi kvenfélagskonunnar árið 2010 til að vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna í 140 ár.  Dagurinn hefur fest sig í sessi undanfarin ár og er hans nú getið á fjölmörgum dagatölum og í dagbókum. Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) var stofnað 1. febrúar 1930 og fagnar því 90 árum í ár.

Sveitafélagið Skagafjörður sendir kvenfélagskonunum sínum í kvenfélögum Lýtingsstaðahrepps, Rípuhrepps, Sauðárkróks, Seyluhrepps, Skarðshrepps, Hóla- og Viðvíkurhrepps, Staðarhrepps, Skefilsstaðahrepps, Hofsóss og Fljótum bestu kveðjur í tilefni dagsins með þökk fyrir ómetanleg störf í gegnum árin.