Fara í efni

Dagur atvinnulífsins 2. desember

01.12.2014

Dagur atvinnulífsins á Norðurlandi vestra er nú haldinn í sjötta sinn en það eru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem standa fyrir deginum. Þessum viðburði er ætlað að skapa vettvang til kynningar á þeirri fjölbreyttu starfsemi sem fram fer á svæðinu og auka umræðu um atvinnumálin.

Adolf Berndsen formaður SSNV setur viðburðinn og Ágústa Sigrún Ágústsdóttir flytur erindi um árangur og miklivægi markvissrar mannauðsstjórnunar. Síðan verða kynnt þau fyrirtæki sem eru tilnefnd til Hvatningarverðlauna SSNV atvinnuþróunar 2014 og dagskránni lýkur á afhendingu verðlaunanna. Verðlaunin eru viðurkenning fyrir góðan árangur og ekki síður hvatning til áframhaldandi starfsemi viðkomandi fyrirtækis/félags/einstaklings. Markmiðið er að hvetja til nýsköpunar og vekja athygli á því sem vel er gert á Norðurlandi vestra en að þessu sinni eru það fyrirtæki og starfsemi í Skagafirði sem sjónum er beint að.

Þau fyrirtæki sem eru tilnefnd í ár eru:

Gæðingur Öl ehf er brugghús á bænum Útvík í Skagafirði. Grunnurinn að brugghúsinu var lagður árið 2010 og árið 2011 komu fyrstu bjórarnir, Lager og Stout á markaðinn. Seinna komu Pale Ale, Hveitibjór og IPA bjór.

Eigendur Gæðings reka einnig Micro bar á Sauðárkróki. Á þessu ári verða um 70-75 þús. lítrar af bjór framleiddir hjá fyrirtækinu.

 Haf og land ehf. er sprotafyrirtæki sem stofnað var á vormánuðum 2014 í því skyni að efla ferðaþjónustu og sýna náttúruperlur og dýralíf við austanverðan Skagafjörð. Fyrirtækið rekur bátinn Súlu SK 6964 sem er yfirbyggður og tekur allt að 19 farþega. Í boði eru daglegar útsýnissiglingar en einnig eru ferðir sem eru sérsniðnar að þörfum viðskiptavinanna.

 Iceprotein ehf. er sprotafyrirtæki sem stofnað var í kringum rannsóknir á fiskpróteinum árið 2005. Iceprotein vinnur að rannsóknum og þróun á vinnslu verðmætra efna, aðallega úr sjávarfangi, með það að markmiði að auka nýtingu og verðmætasköpun í sjávarútvegi. Einnig hefur Iceprotein aðstoðað önnur fyrirtæki við mælingar á efnum og örverum og tekið þátt í kennslu, bæði á grunnskóla- og framhaldsskólastigi.

 Sauðárkróksbakarí var stofnað árið 1880. Fyrirtækið hefur ávallt lagt metnað sinn í að framleiða góða vöru. Áhersla er lögð á að nota uppskriftir sem hafa verið í fjölskyldunni í áratugi en einnig fylgja eftir nýjungum og að vera í takt við tímann. Kaffiterían rúmar allt að 40 manns en einnig hefur verið gerð góð útiaðstaða fyrir gesti.

 Urðarköttur er fjölskyldufyrirtæki staðsett á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Meginverkefni fyrirtækisins er framleiðsla minkaskinna og rekstur skinnaverkunar. Einnig hefur verið unnið að því að þróa leiðir til nýtingar á þeirri minkafitu sem fellur til við verkun skinnanna og afrakstur þess er vörulínan Gandur sem samanstendur af græðandi smyrslum fyrir menn og dýr. 

Hvatningarverðlaun SSNV atvinnuþróunar hafa verið veitt frá árinu 1999. Eftirtaldir aðilar hafa hlotið verðlaunin:

Árið 2013 - Selasigling ehf. á Hvammstanga               

Árið 2012 - Sjávarlíftæknifyrirtækið BioPol ehf. á Skagaströnd

Árið 2011 - Hlíðarkaup á Sauðárkróki

Árið 2010 - Ferðaþjónustan á Brekkulæk í Miðfirði

Árið 2009 - Léttitækni ehf á Blönduósi

Árið 2008 - Sjávarleður hf á Sauðárkróki

Árið 2007 - Siglufjarðar Seigur - bátasmiðja.

Árið 2006 - Forsvar ehf á Hvammstanga.

Árið 2004 - Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi.

Árið 2003 - Háskólinn á Hólum.

Árið 2002 - Síldarminjasafnið á Siglufirði.

Árið 2001 - Hestamiðstöðin Gauksmýri.

Árið 2000 - Vesturfarasetrið á Hofsósi.

Árið 1999 - Kántrýbær á Skagaströnd.